Færsluflokkur: Samgöngur
25.8.2009 | 13:33
Byrgðastaða olíufélaganna
Alltaf finnst mér það jafn athyglisvert þegar olíufélögin hér á landi hækka hjá sér verð á eldsneyti. Þegar heimsmarkaðsverðið hækkar eða krónan lækkar, hækka olíufélögin nánast um leið.
Hinsvegar þegar heimsmarkaðsverðið lækkar og/eða gengi krónunnar hækkar að þá eiga olíufélögin allt í einu svo miklar byrgðir.
Einnig finnst mér mjög sérstakt að á Akranesi (í gær, 24 ágúst) kostaði bensínlítrinn 188.3 krónur á öllum bensínstöðvunum. Olís, Shell og N1. Eflaust hækkar hann núna um 2 krónur hjá Olís.
Er þetta eðlileg samkeppni ?
![]() |
Olís hækkar eldsneytisverð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |